Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Hringleikur í Elliðárstöð – Viðtal

23. ágúst 2023

Viðtalið tók Benóný Ægisson og birtist það fyrst í hverfablaðinu Laugardalur, Háaleiti & Bústaðir í ágúst 2023

Nú er í uppsiglingu allsérstök sirkussýning í Elliðaárstöð sem mun heita MegaWhat!?

Að sögn þeirra Jóakims Kvaran og Eyrúnar Ævarsdóttir sem eru sirkuslistamenn í Hringleik er titillinn umsnúningur á orðinu megavatt sem á vel við í rafstöð en er einnig tenging við undur sirkuslistanna. Rafstöðin við Elliðaár er 102 ára en þann 27. júní 1921 tóku Kristján konungur tíundi og Alexandrína drottning fyrstu tvær vélarnar formlega í notkun og opnuðu þessa fyrstu rafstöð Reykvíkinga. Við hittum þau Eyrúnu og Jóakim í Elliðaárstöð og spurðum hvort þetta aldargamla tæknirými sem rafstöðin er væri góður bakgrunnur fyrir sirkussýningu.

Okkur finnst það, segir Eyrún, og við erum spennt að sjá hvaða möguleika þessi rými hafa verið að bjóða okkur. Það er gaman að leika sér í þessu rými sem er helgað þeim öflum sem búa í náttúrunni og í sirkus er maður alltaf að fást við það hvernig hlutir hreyfast og hvernig maður nýtir öfl náttúrunnar til að hreyfa hluti.

Hluti af sýningunni fer fram hérna í vélasalnum og það er spennandi að fá að vera inni í þessu merkilega rými en svo flökkum við út og erum á útisvæðinu og erum að nota ólík rými sem eru hluti af þessari stöð. Þetta er sirkussýning en í grunninn erum við að láta vísindi og þessi náttúruöfl sem búa hérna í Elliðaárstöð gefa okkur innblástur fyrir karakterna sem bera uppi þessa sýningu.

Það var eins og að stíga inn í annan heim, þegar við komium hingað, eins og það sé einhverskonar hliðarheimur og það er eins og þessir íbúar Elliðaárstöðvar hafi verið að koma sér fyrir hérna og þau hafa verið að rannsaka þau öfl sem hér búa.

Er þetta stór sýning?

Við erum sjö flytjendur með einum tónlistarmanni þannig að þetta er nokkuð stór sýning. Við verðum með loftfimleika, akróbatík, djöggl og cir-hjól og við munum frumsýna nýtt sirkusáhald sem var þróað Jóakim Kvaran og Eyrún Ævarsdóttir sérstaklega fyrir þetta verkefni, stóran sveifluhamar, þannig að hér höfum við haft uppfinninga tækifæri og notað tækifærið til nýsköpunar, leikið okkur og prófað.

Hvenær ætlið þið að frumsýna?

Við erum að frumsýna 26. ágúst og við verðum með sýningar í þrjár helgar, þannig að þetta verður þétt og snarpt. Við erum að vonast eftir góðu haustveðri því hluti af sýningunni er utandyra en það er yfirleitt alltaf logn í Elliðaárdalnum.

En eruð þið ekki alvön að fást við allskonar veður?

Við höfum gert sýningu sem hét Allra veðra von og þá var grunnhugmyndin að sirkus er alltaf að fást við þau grunnöfl og element sem eru til staðar þannig að við höfum látið náttúruöflin hafa áhrif á okkur.

Þetta er fyrir alla aldurhópa, segir Jóakim, aðgengilegt og skemmtilegt og óhefðbundin sviðslistaupplifun og við endum sýninguna á upplifunarsmiðju þar sem gestirnir fá að prófa sirkuslistir. Svo er ástæða til að segja frá því hvernig við verðleggjum sýninguna, miðasalan er svolítið óhefðbundin því okkur langar til að sýningin sé aðgengileg öllum óháð fjárhag. Þannig að þú getir í raun valið miðaverð innan viss ramma eins og þú hefur tök og efni á.

Hvernig kom samstarf við Elliðaárstöðina til?

Okkur var bent á að þetta væri flott svæði sem myndi henta mjög vel fyrir sirkuslistir. Hér eru skemmtileg rými, bæði sem voru hér upphaflega og svo önnur sem verið er að þróa í þeirri uppbyggingu sem stendur yfir núna. Við vorum í samstarfi á Barnamenningarhátíð í covidástandinu þegar allir voru að leita að möguleikum til að gera eitthvað en þá fengum við að vera hérna með útiviðburð sem heppnaðist vel og það hefur undið upp á sig. Við erum búin að vera með nokkra tilraunaviðburði af þessu verki þar sem við höfum verið að prófa hvað virkar. Við vorum líka með viðburð á Listahátíð og þau sem eru með Elliðaárstöð hafa verið okkur mjög hjálpleg.

Aðstandendur sýningarinnar MegaWhat!?:

Sirkuslistafólk: Jóakim Kvaran, Bryndís Torfadóttir, Thomas Burke, Bjarni Árnason, Axel Diego, Eyrún Ævarsdóttir

Tónlist: Linus Orri Gunnarsson Cederborg

Leikstjórn: Hallveig Kristín Eiríksdóttir

Búningar og sviðsmynd: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

Verkefnisstjórn og framleiðsla: Hringleikur og Elliðaárstöð og miðasala er á ellidaarstod.is.

Nældu þér í miða á sýninguna

MEGAWWHAT! Er sýnd í Elliðaárstöð kl. 14 alla laugardaga og sunnudaga frá 26. ágúst til og með 10. september.

Kaupa miða

Aðrar fréttir