Elliðaárstöð og Orkuveitan kynna Hringrásina, nýja hjóla- og upplifunarleið um vatn í Reykjavík. Leiðin tengir saman átta viðkomustaði þar sem gestir kynnast vatninu sem rennur undir fótum okkar um borgina og tengir saman náttúru, innviði og daglegt líf.
Hringrásin hefst og endar í Elliðaárstöð og er hjóluð í áttu. Lögun leiðarinnar vísar bæði til tákns óendanleikans og hinnar sífelldu hringrásar vatnsins. Leiðin skiptist í tvo samtengda hringi sem mætast í Elliðaárstöð og eru fjögur fræðslustopp á hvorri leið, alls átta.
Vatnaleið efri liggur frá Elliðaárstöð að Rauðhólum og þaðan um Grafarvog og Elliðaárvog. Vatnaleið neðri fer um Fossvog, Vatnsmýri, Tjörnina, að skólpdælustöðinni við Sæbraut og um Laugardal áður en komið er aftur í Elliðaárstöð.
Á leiðinni er fjallað um grunnvatn, vatnsvernd, fráveitu og þá innviði sem tryggja aðgang að hreinu vatni og heilnæmu umhverfi. Leiðin er að mestu á malbikuðum hjóla- og göngustígum og hentar vel á almennum borgarhjólum.
Það sem gerir Hringrásina sérstaka er að hún býður upp á nýja leið til að upplifa Reykjavík. Með korti, skiltum og stafrænu efni við hvert stopp geta íbúar og gestir farið leiðina á eigin vegum og uppgötvað vatnið sem mótar borgina.
Hringrásin er hluti af ICEWATER verkefni Elliðaárstöðvar og Orkuveitunnar sem miðar að því að auka vitund um vatn, grunnvatnsvernd og sjálfbæra nýtingu vatnsauðlinda.
Elliðaárstöð – Gerir ósýnilegt sýnilegt
Hönnuðar Hringrásarinnar eru Sædís Ólafsdóttir, auðlindaleiðtogi fráveitu hjá Orkuveitunni, Þráinn Friðriksson, auðlindaleiðtogi Hitaveitu hjá Orkuveitunni, Elísabet Jónsdóttir, hönnuður og sýningastjóri Elliðaárstöðvar og Margrét Hugadóttir, leiðtogi vísindamiðlunar.