Það var líf og fjör í Hörpu á UT messunni 3. febrúar síðastliðinn. Fjölmargir gerðu sér leið í Hugmyndastöð Elliðaárstöðvar og Hugmyndasmiða þar sem hægt var að æfa sig í að finna skapandi lausnir hvort sem var fyrir vandamál framtíðarinnar eða finna leið til að byggja turn.
Þátttakendur á öllum aldri tóku þátt og efldu sig í frumkvöðlafærni í leiðinni. Hægt var að fræðast um jarðhitann og kynna sér sögu gufuborsins Dofra sem hefur nú fengið framtíðarheimili í Elliðaárstöð.
Hugmyndasmiðir kynntu nýútkomna bók Frábær hugmynd! og samnefnda þætti í samstarfi við KrakkaRúv.
Hugmyndasmiðir og Elliðaárstöð gerðu nýlega með sér samstarfssamning um að efla í sameiningu fræðslu um nýsköpun fyrir krakka og gefa þeim rými til að gera tilraunir og þróa frumkvöðlafærni sína, meira um það síðar.