Iðnir og tækni er samstarfsverkefni sem OR samstæðan hefur um árabil í samstarfi við Árbæjarskóla boðið upp á valáfanga fyrir 10 bekk skólans. Markmið áfangans er m.a. að gefa nemendum kost á því að kynnast fjölbreytileika iðn- og tæknistarfa, breyta staðalmyndum iðngreina og fjölga konum í iðn- og tæknistörfum. Elliðaárstöð hefur umsjón með verkefninu en það er unnið í samstarfi við starfsfólk Veitna, OR, ON, Ljósleiðarans og Carb-fix.
Nýverið var haldin uppskeruhátið í Elliðaárstöð þar sem nemendur kynntu verkefni sín fyrir foreldurm og kennurum.