Laugardaginn 6. júní fylltist Elliðaárdalurinn af lífi og sköpunargleði þegar Elliðaárstöð og Listahátíð í Reykjavík buðu til fjölskylduhátíðar í dalnum. Tæplega 900 gestir á öllum aldri lögðu leið sína á svæðið og tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem náttúra, listir og leikur mættust á lifandi og skapandi hátt.
Veðrið lék við gesti og dalurinn tók á sig nýjan blæ þar sem listafólk fyllti svæðið af hljóðum, hreyfingum og fjölbreyttum upplifunum. Gestir flökkuðu milli viðburða, stöldruðu við, hlustuðu, prófuðu og sköpuðu, hver á sínum forsendum.
Eitt af því sem vakti sérstaka athygli voru hljóðgöngur tónlistarhópsins Silfá. Gestir fylgdu hópnum eftir skógarstígum og meðfram ánni þar sem víóluleikur, píanó og söngur fléttuðust saman við fuglasöng og nið árinnar. Náttúran varð þannig hluti af tónlistarupplifuninni og um leið vettvangur hlustunar og nærveru.
Í Gestastofu Elliðaárstöðvar bauð dansdúettinn Project HOFIE upp á dansupplifunina Hvernig getum við rofið þennan hring? Þar fengu gestir að hægja á og taka þátt í sköpunarferlinu. Fjölmörg settust niður, teiknuðu og máluðu og urðu þannig virkir þátttakendur í verkinu.
Í Gerverinu ríkti sköpunargleði í Náttúrukórónasmiðju hönnunarteymisins Þykjó. Þar var að finna fjölbreyttan náttúrulegan efnivið sem börn og fullorðnir nýttu til að búa til eigin kórónur. Fjölskyldur dvöldu lengi við smiðjuna, nutu samverunnar og leyfðu ímyndunaraflinu að njóta sín í rólegu og skapandi umhverfi.
Listafólk Hringleiks setti líka svip sinn á daginn með sirkuslist þar sem unnið var með rýmið og umhverfið á nýstárlegan hátt. Sýnd voru þrjú atriði, svokölluð Sirkusfræ, þar sem gestir fengu að upplifa hvernig gamli spennaturninn varð hluti af óvæntri sviðsmynd.
Þá vakti ilmratleikur Fischersunds forvitni margra. Gestir fylgdu korti um svæðið og leituðu að ólíkum ilmum sem faldir voru á nokkrum stöðum á svæðinu. Tveir heppnir þátttakendur unnu til verðlauna og fengu gjafapoka frá Fischersundi.
Gestir fengu tækifæri til að upplifa dalinn á nýjan hátt þar sem sköpun, samvera og tenging við náttúru voru ríkjandi. Elliðaárstöð er svo sannarlega lifandi áfangastaður orku og náttúru í hjarta borgarinnar.