Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Meistarabúðir, stökkpallur frumkvöðla

9. júní 2026

Meistarabúðir er skapandi sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-11 ára sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum. Námskeiðið fer fram bæði úti og inni í Elliðaárstöð og munu þátttakendur smíða og búa til, fara í leiki og lenda í ævintýrum. Þemað í ár er Kassabílar.

Á námskeiðinu læra þátttakendur að fá hugmyndir og hugsa skapandi, að sækja innblástur úr umhverfinu, búa til hugmyndir með og fyrir náttúruna auk þess að fá að læra ýmislegt um endurnýtingu, orku og vísindi.

Námskeiðið fer fram 22. – 26. júní næstkomandi í Elliðaárstöð, skráning er enn í fullum gangi. Meistarabúðir hafa verið haldnar í Elliðaárstöð síðastliðin tvö sumur og það má svo sannarlega segja að námskeiðið sé stökkpallur fyrir frumkvöðla framtíðarinnar.

Aðrar fréttir