Metaðsókn var í Elliðaárstöð þann 7. ágúst þegar um 2000 manns sóttu svæðið. Bílastæði fylltust og fólk á öllum aldri streymdi í dalinn. Það var ekki af ástæðulausu þar sem dagurinn var einn sá sólríkasti það sem af er sumri og veðrið lék við borgarbúa.
Hinsegin dagar fengu afnot af útisvæðinu til að halda fjölskylduhátíð þar sem boðið var uppá blöðrur, andlitsmálingu og Leikhópurinn Lotta sýndi tvær sýningar. Hægt er að leigja svæðið fyrir slíka viðburði hér.