Orka, vatn, veitur, hönnun og saga Elliðaánna tengjast saman í nýrri vörulínu hönnunarteymisins Tertu og Elliðaárstöðvar.
Árstraumur Elliðaánna hefur í áranna rás verið virkjaður til nýsköpunar og orkuframleiðslu. Á tímum Innréttinganna á 18. öld var starfrækt þófaramylla, litunarhús og sútunarverkstæði við bakka Elliðaárnar. Innréttingarnar voru framtak nokkurra Íslendinga, þeirra á meðal Skúla Magnússonar, til að koma á laggirnar verksmiðjuframleiðslu á Íslandi og var ullarvinnslan við Elliðaárnar hluti af þessu framtaki.
Trefillinn Ullarfoss er ein af nýju hönnunarvörum Elliðaarstöðvar og heitir í höfuðið á einum af fjölmörgum fossum Elliðaánna og tengist nýsköpunarkrafti fyrri tíma. Vörurnar sem eru í takmörkuðu upplagi fást í verslun Jarðhitasýningarinnar (www.on.is/jardhitasyning/) og í Elliðaárstöð (Hafðu samband: ellidarstod@ellidaarstod.is)
Á myndinni hér til hliðar má sjá sýnishorn af framleiðslu Innréttinganna og er myndin frá Þjóðskjalasafni Íslands.