Velheppnað nýársþing KÍO (Konur í orkumálum) var haldið í samstarfi við Veitur í Elliðaástöð. Fundurinn var einlægur og opinskár Trúnó fundur þar sem m.a. var rætt hvernig hægt er að hreyfa við óskrifuðum venjum og viðhorfum og með hvaða hætti hægt væri að virkja tengslanetið til árangurs.
Heiðursgestur fundarins var Elíza Reid rithöfundur, frumkvöðull og forsetafrú. En hún hefur með eftirtektarverðum hætti nýtt áhrif sín til að hrista upp í rótgrónum venjum og hugmyndum í jafnréttismálum.
Elíza hefur beint kastljósinu að konum og lyft þeim upp t.d. með bók sinni Sprakkar sem kom út árið 2021 um allan heim. Þar ræddi hún við breiðan hóp kvenna frá ólíkum stéttum, uppruna og bakrunns á Íslandi. Konur sem hafa hreyft við málum í átt að forystu og jafnrétti á Íslandi.
Fundarstjóri var Birna Bragadóttir forstöðukona Elliðaárstöðvar og í pallborði Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri Rarik go Svandís Karlsdóttir framkvæmdarstjóri hjá Landsneti.
Við í Elliðaárstöð erum stolt af því að hafa tekið að okkur að skipuleggja vel heppnaðan viðburð með KÍÓ félögum. Við þökkum Veitum fyrir að styrkja viðburðinn.
Það er augljóst að kraftur kvenna í orku-og veitumálum er komin til að vera!