Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Nýtt og spennandi starf í Elliðaárstöð

31. mars 2023

Móttaka gesta og vísindamiðlun

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingum til að sinna gestamóttöku og vísindamiðlun í nýrri gestamóttöku OR samstæðu í Elliðaárstöð.

Í starfinu felst móttaka gesta í Elliðaárstöð, ráðgjöf og upplýsingagjöf til viðskiptavina fyrirtækja OR samstæðu; Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix.

Miðlun fræðslu um orku, vísindi og umhverfismál til barna og fullorðna verður hluti af starfinu ásamt því að veita jákvæða upplifun og þjónustu til fjölbreytts hóps gesta á öllum aldri sem heimsækja Elliðaárstöð.

Færni og eiginleikar:

• Áhugi og þekking á orku-, veitu- og umhverfismálum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni til að miðla þekkingu, þjónustuvilji og samskiptafærni
• Gott vald á íslensku og ensku
• Færni til að stuðla að góðum liðsanda.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2023.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.

Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í Elliðaárdal á vegum OR þar sem gestir koma til að fræðast, upplifa, skapa og njóta náttúrunnar.

OR er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, jafnrétti, vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og einkalíf.

Nánari upplýsingar veitir Birna Bragadóttir forstöðukona Elliðaárstöðvar og Jarðhitasýningar á netfangið birna.bragadottir(hjá)or.is

Sæktu um starfið hér:  https://jobs.50skills.com/orkuveita/is/19989 

Aðrar fréttir