Opnað hefur verið fyrir bókanir í skólaheimsóknir í Elliðaárstöð vorönn 2024.
Orkuveitan býður skólahópum á miðstigi í skemmtilega upplifunar- og fræðsludagskrá um orku, vísindi og umhverfismál þeim að kostnaðarlausu.
Áhersla er lögð á að gera ósýnilegt sýnilegt og sýna hvernig borgin okkar virkar á bak við tjöldin. Við veltum fyrir okkur hvernig hlutirnir voru í fortíðinni og hvernig þeir verða mögulega í framtíðinni. Leiðarljós okkar í fræðslu er STREAM menntun en hún samþættir vísindi, tækni, skemmtun, verkfræði, listir og stærðfræði. Slík nálgun eflir nýsköpunarhæfni, gagnrýna hugsun og lausnaleit.
Fræðslan fer fram á þriðjudögum og miðvikudögum á milli kl. 9.30-11.00 eða eftir samkomulagi. Heimsóknin miðast við 90 mín. Hægt er að bóka heimsókn hér.