Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

STEAM menntun og jarðhiti í Elliðaárstöð – Sumarverkefni

5. apríl 2023
Barn í gufu, umkringt STEAM táknum.

Sumarverkefni fyrir háskólanema á menntavísindasviði

Vertu með okkur í Elliðaárstöð að fræða fólk um jarðhita og orku í Elliðaárdalnum.

Verkefnið „Heitur reitur” felur í sér þróun fræðsluefnis fyrir almenning og skólahópa um jarðhita og hitaveituna í Elliðaárdal. Fræðsluefnið er mótað í anda STEAM og STREAM menntunar þar sem áhersla er lögð á samvinnu, lausnaleit, vísindalæsi, hönnunarhugsun og nýsköpun. Lestu meira um STEAM menntun hér. 

Afrakstur verkefnisins er fræðsluefni sem birt verður á vef og nýtt í heimsóknum gesta og skólahópa í Elliðaárstöð.

Verkefnið er ætlað nemendum sem stunda nám í menntavísindum á háskólastigi eða eru nýútskrifaðir og er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.

Markmið verkefnisins eru að:

  • styðja við innleiðingu STEAM menntunar í Elliðaárstöð,
  • þróa efni sem eykur þekkingu ungmenna og borgarbúa á jarðhita og heitu vatni sem dýrmætri auðlind,
  • auka vísindalæsi gesta dalsins.

Helstu verkþættir

  • Greining gagna um heitavatnsnotkun borgarbúa og miðlun efnis á skapandi hátt.
  • Könnun forþekkingar gesta á hitaveitu og jarðhita í Elliðaárdal.
  • Gerð fræðsluefnis um jarðhitann, hitaveituna í Elliðaárdal og gufuborinn Dofra.

Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í Elliðaárdal á vegum Orkuveitu Reykjavíkur þar sem gestir koma til að fræðast, upplifa, skapa og njóta náttúrunnar. OR er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, jafnrétti, vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og einkalíf. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Sæktu um hér https://jobs.50skills.com/orkuveita/is/20158

Nánari upplýsingar veitir Margrét Hugadóttir leiðtogi þekkingarmiðlunar og fræðslu á netfangið margret.hugadottir@or.is

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí .

Aðrar fréttir