Í Elliðaárdal er að finna litla rauða skúra sem eru staðsettir á milli göngu- og hjólastíga. Þessir látlausu skúrar, sem fæstir taka eftir, hýsa borholur sem eru mikilvægur hluti af hitaveituþjónustunni í Reykjavík.
Í Elliðaárdalnum eru afkastamikil jarðhitasvæði sem hafa verið nýtt frá miðri síðustu öld. Á næstu misserum mun Elliðaárstöð draga borholurnar fram í dagsljósið, sögu þeirra og hlutverk.
Á myndinni má sjá nokkrar borholur sem staðsettar eru í Elliðaárdal merktar með rauðri doppu.