Árið 1951 hóf Rafmagnsveita Reykjavíkur skógræktarstarf í Árhólmanum sem á þeim tíma var hrjóstugur melur. Með því hófst ræktunarstarf og um árabil voru settar niður þúsundir plantna í hólmanum á sérstökum skógræktardegi. Skógræktarfélag Reykjavíkur hóf síðan gróðursetningu í dalnum 1972 og tók að sér umsjón trjágróðurs í dalnum. Frá árinu 1996 hefur umsjón gróðurs í dalnum verið í höndum Reykjavíkurborgar.
Skógurinn sem er á svæðinu í dag er ávöxtur þessa starfs. Meðal algengustu trjátegunda í Elliðaárdal eru birki, reyniviður, viðja, lerki, alaskavíðir, sitkagreni og stafafura. Út í miðjum Árhólmanum stendur fallegt 12 m hátt rauðgreni sem valið var tré ársins 2019.