Hvernig var dagur langalangalangömmu þinnar?
Sjáðu fyrir þér myrkan janúardag fyrir um hundrað og fimmtíu árum. Formóðir þín fer fram úr rúminu og kveikir upp í fífukveik í lampa eða kveikir kolu. Hún notar kindamör, hrossafeiti, hvalspik eða lýsi úr sel, hákarli eða fiski. Kannski er hún nýbúin að fá steinolíulampa, algjöra tækninýjung.
Daglegt líf er tímafrekt og aðstæður frumstæðar miðað við nútímann. Heimilisstörfin taka stóran hluta dagsins og það er alls ekki víst að langalangalangamma þín hafi haft mikinn tíma til umráða fyrir sjálfa sig.
Raftæki gáfu konum dýrmætan tíma
Rafvæðing heimila hafði gríðarleg áhrif á daglegt líf fólks og þá sérstaklega á líf kvenna sem sinntu heimilisstörfum. Með raforku og raftækjum styttist tíminn sem fór í þvott, matargerð og önnur heimilisverk. Líkamlega erfiðisvinnan minnkaði og konur fengu fleiri klukkustundir í sólarhringinn.
Þennan tíma gátu sumar nýtt til launaðrar vinnu, aðrar til menntunar eða til að sinna hugðarefnum sínum. Rafmagnið breytti ekki aðeins heimilum heldur samfélaginu öllu.
Raftæki styðja við jafnrétti enn í dag
Í dag hafa um 2 milljarðar jarðarbúa aðgang að rafmagnsþvottavél. Það þýðir að þvottur hjá um 6 milljörðum manns er enn þveginn í höndunum, oftast af konum.
Þar sem þvottavélar eru til staðar styttist tíminn sem fer í heimilisstörf, fleiri karlar taka þátt í þeim og konur fá aukið svigrúm til að lesa, læra og vinna launaða vinnu. Þannig verða raftæki áfram mikilvægur þáttur í jafnrétti kynja.
Jákvæð áhrif víða en vantar enn mikið uppá
Raftæki og raforka hafa haft jákvæð áhrif á líf kvenna á Íslandi, en hvernig er staðan í heiminum?
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra orku gera ráð fyrir að allir hafi aðgang að öruggri og sjálfbærri orku fyrir árið 2030. Í dag hafa níu af hverjum tíu jarðarbúum aðgang að rafmagni, en samt eru yfir 700 milljónir manna enn án raforku.
Aðeins einn fjórði jarðarbúa hefur aðgang að þvottavél. Það þýðir að líklega handþvo konur enn þvott fyrir milljarða manna á hverjum degi.
Um þrír milljarðar jarðarbúa elda mat á opnum eldi eða í reykspúandi ofnum. Afleiðingarnar eru alvarlegar: talið er að allt að fjórar milljónir manna deyi árlega af völdum loftmengunar sem rekja má til þessa og þar verða konur sérstaklega fyrir barðinu.
Rafmögnuð framtíð
Formæður okkar gátu varla ímyndað sér þær tækniframfarir sem hafa átt sér stað inni á heimilum og í samfélaginu öllu. Rafvæðing hefur einfaldað líf okkar, aukið lífsgæði og heldur áfram að móta framtíðina.
Á Íslandi erum við í þeirri forréttindastöðu að búa yfir endurnýjanlegum orkugjöfum. Það kallar á ábyrgð: að nýta auðlindirnar þannig að við skerðum ekki tækifæri komandi kynslóða.
Hvernig mun aukin rafvæðing bæta líf kvenna í heiminum í framtíðinni?