Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Stöð 4 – Raftæki

Það væri skrýtið að lifa án rafmagns.
Enginn ísskápur, þvottavél eða rafmagnsljós.

Árið 1831 uppgötvaði breski vísindamaðurinn Michael Faraday að ef kopar (eða einhver leiðari) er látinn snúast kringum segul þá myndast rafstraumur. Þannig fann hann upp fyrsta tækið sem gat búið til rafmagn, rafal.

Enn þann dag í dag eru rafalar notaðir til að framleiða raforku en í Elliðaárstöð var vatnið látið snúa túrbínu sem svo sneri rafalinum. Það var því vatnið sem sá til þess að koparinn hreyfðist í kringum segulinn og rafeindirnar fóru að streyma.

Í Hellisheiðarvirkjun er jarðvarmi og gufa notuð til að snúa túrbínunni og rafalnum.

Hvernig væri lífið þitt án rafmagns?
Hvaða raftæki væri erfiðast að lifa án?

Electrical Appliances

It would be strange to live without electricity.
No fridge, washing machine or electric lighting.

In the year 1831 the British scientist Michael Faraday discovered that if copper (or any conductor) spins around a magnet it creates an electric current. That is how he invented the first device that could produce electricity, a generator.

Still to this day generators are used to produce electricity, in Elliðaárstöð the water was used to spin a turbine which then spun the generator. So it was the water that made it so that the copper spun around the magnet and the electrons started flowing.

In the power plant in Hellisheiði geothermal steam is used to spin the turbine and generator.

How would life be without electricity?
Which electrical appliance would it be hardest to live without?