Skólaheimsókn: Í þessari heimsókn læra nemendur um fráveituna og hvernig hún er lífsnauðsynleg fyrir okkur. Nemendur taka þátt í STEM zip line áskorun þar sem „kúkur“ þarf að komast úr klósetti í hreinsistöð.
Heimsóknin er 90 mínútur.
Fræðslan er ætluð nemendum á miðstigi grunnskóla.
Heimsóknin tekur 90 mínútur.
Hámarksfjöldi er 25 nemendur.
Vinsamlegast látið tvo starfsmenn fylgja hópnum.
Helstu hugtök: Hringrásir, fráveita, skólp, mengun, holræsi, heilbrigði vatns, lagnir, blautþurrkur.
Kennari í ReykjavíkKúka-zip-line áskorunin var alveg frábær!
Vissir þú að fráveitan bjargar mannslífum?
Allt það sem við sturtum niður og það sem fer í niðurfallið í vöskum á heimilum okkar ratar út í fráveitukerfið. Þegar borgin byggðist var engin fráveita sem tók við skólpinu okkar. Opnar rennur voru grafnar í götur og rann skólpið oft afar nálægt brunnum þar sem fólk sótti sér drykkjarvatn.
Fyrsta skólplögnin sem vitað er til að lögð hafi verið neðanjarðar í Reykjavík var lögð af frumkvæði nunnanna í Landakoti, niður Ægisgötu að sjó. Góð fráveita er mikilvægt heilsufarsmál og almannaþjónusta sem fáir geta hugsað sér að vera án.
Á þessum tíma veiktust margir og dóu vegna vatnsborinna sjúkdóma líkt og taugaveiki. Því voru það holræsi sem björguðu mannslífum.
Enn þann dag í dag hafa mörg heimili í heiminum ekki aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna miða að því að árið 2030 hafi flestir í heiminum aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu.
Kemst kúkurinn úr klósetti í hreinsistöð
Nemendahópar reyna að koma „kúk“ eftir Zip-line. Verkefnið er hönnunaráskorun í anda STEAM menntunar.
STEAM Zip-line áskorun
Kemst kúkurinn úr klósettinu í hreinsistöðina? Nemendur þurfa að hugsa út fyrir kassann og taka þátt í STEAM zip line áskorun.
Bóka heimsókn