Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Söguleiðsögn í Elliðaárstöð

24. júní 2026

Fimmtudaginn 11. júní bauð sagnfræðingurinn Stefán Pálsson upp á söguleiðsögn í kringum svæði Elliðaárstöðvar.

Stefán er fyrrverandi forstöðumaður Minjasafns Rafmagnsveitu Reykjavíkur, síðar Orkuveitu Reykjavíkur og gríðarlega fróður um sögu Elliðaárstöðvar.

Yfir 100 gestir mættu til þess að fræðast um þessar slóðir og umfjöllunarefni göngunnar var meðal annars hver teiknaði gömlu rafstöðina. Þrátt fyrir að vera talin með fallegri byggingum Reykjavíkur, er ekki vitað með vissu hvaða arkitekt eigi heiðurinn að henni. Mögulega voru það verkfræðingarnir sem þar störfuðu, en önnur kenning er að verkfræðingarnir hafi með leynd notast við teikningar norsks arkitekts.

Í söguleiðsögninni var einnig komið við hjá Toppstöðinni, en þar fyrir aftan stóð eitt sinn svokölluð þófaramylla innréttinganna sem Skúli fógeti kom á laggirnar.

Því næst var fjallað um skíðasvæðið í Ártúnsbrekku. Þegar skíðamenning Íslendinga var á frumstigi voru þar haldin mót þar sem ýmsar kúnstir voru sýndar, meðal annars héldu keppendur á kyndli í stað skíðastafa niður brekkuna.

Við lok söguleiðsagnarinnar fengu gestir að líta inn í gömlu Rafstöðina, sem er jafn falleg að innan og hún er að utan.

Við þökkum Stefáni kærlega fyrir skemmtilega og virkilega lærdómsríka söguleiðsögn og þökkum öllum gestum fyrir komuna.

Aðrar fréttir