Ævintýrin lifna við – Fjölskyldugleði í Elliðaárstöð
-
Aðgangur ókeypis
-
23. apríl 2026
-
13:00
-
Sjá á korti
Fögnum saman sumardeginum fyrsta í ævintýralegu umhverfi Elliðaárstöðvar.
Þann 23. apríl, á sumardaginn fyrsta, bjóðum við upp á sannkallaða fjölskyldugleði við Elliðaárstöð þar sem krakkar og fullorðnir á öllum aldri eru hvött til að leika sér og hafa gaman.
Vatni verður hleypt á hinn geysivinsæla Vatnsleikjagarð, kaffihúsið Elliði og Gestastofa Elliðaárstöðvar opna dyr sínar fyrir gestum dalsins, skemmtilegir DJ-tónar munu óma um svæðið, Hugmyndasmiðir bjóða upp á fjölskyldusmiðju í Gestastofunni frá 13-15 og hægt verður að taka þátt í hjóladagskrá Reiðhjólabænda.
Fjölskyldudagskrá Elliðaárstöðvar verður frá 13:00–15:00, samhliða Hjólahátíð Reiðhjólabænda frá 11:00–15:00.
Dagskrá Hjólahátíðar má finna hér
Sumaropnunartími Elliðaárstöðvar frá 23. apríl til 30. september
Kaffihúsið Elliði:
þriðjudaga til sunnudaga frá 11:00–17:00
Hlökkum til að sjá ykkur!