Auðlindahringir 2024 – Hitaveituhringur
-
Aðgangur ókeypis
-
21. ágúst 2024
-
17:00
-
Sjá á korti
Vissir þú að það eru 3000 km af pípum sem sjá okkur fyrir hita í húsin, vatni í sturtur og sundlaugar? Það er eins og tveir hringir í kringum landið. Fyrir tíma hitaveitunnar var Reykjavík köld og mettuð af kolaryki og hefur hitaveitan haldið á okkur hita í tæp 100 ár.
Hitaveituhringur er önnur hjólaleiðsögnin af þremur. Farin verður 35 km fjalla- og malarhjólaleið um náttúruperlur í nærumhverfinu. Fræðst verður um jarðhitaauðlindina sem Reykjavík dregur nafn sitt af og innviðina sem byggðir hafa verið upp til að veita okkur þessi mikilvægu lífsgæði sem heitt vatn gefur.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjallahjólum/ malarhjólum eða raffjallahjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.
Ingvi Gunnarsson, Þráinn Friðriksson og Sædís Ólafsdóttir auðlindasérfræðingar hjá Orkuveitunni leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.
Þátttaka er ókeypis og boðið verður upp á veitingar á leiðinni.
Hér er hægt að sjá leiðina í Strava: https://www.strava.com/routes/3258100384533760436