Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Auðlindahringir 2025 – vatnsveituhringur

  • Coins Aðgangur ókeypis
  • Calendar 11. júní 2025
  • Clock 17:00
Auðlindahringir er viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Hjólað verður á miðvikudögum og munum við bjóða í ár upp á samtals 3 hringi; Vatnsveituhringur 11. júní, Hitaveituhringur 20. ágúst og Rafveituhringinn 17. september.
💧Vatnsveituhringur
Vissir þú að í krönum Reykvíkinga er vígt vatn? Guðmundur góði Hólabiskup vígði Gvendarbrunna á 12. öld en þangað hafa borgarbúar sótt neysluvatn sitt í meira en 100 ár. Vatnsveituhringur er fyrsta hjólaleiðsögn sumarsins.
Farin verður 23 km löng leið fyrir fjalla-, malar- og raffjallahjól þar sem hjólað verður um vatnstökusvæði Reykvíkinga í náttúruperlunum í Elliðaánum og Heiðmörk. Þátttakendur fá tækifæri til að fræðast um uppruna vatnsins, sögu vatnsveitunnar og mikilvægi hreins neysluvatns.
💧Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjalla-, malar- og raffjallahjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.
💧Þráinn Friðriksson og Olgeir Örlygsson auðlindasérfræðingar hjá Orkuveitunni og Veitum leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.
Hér er hægt að sjá leiðina á STRAVA:
https://www.strava.com/routes/3362739090149438522
Þátttaka er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur

Aðrir viðburðir