Auðlindahringir Elliðaárstöðvar
-
Aðgangur ókeypis
-
23. júní 2022
-
00:00
-
Sjá á korti
FRÁVEITUHRINGUR // 23. júní // kl: 17-19
Auðlindahringir er ný viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar OR leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir höfuðborgarsvæðisins.
Hvernig væri Reykjavík án fráveitu? Vissuð þið að Cloacina var gyðja hreinlætis?
Fráveituhringur er önnur hjólaleiðsögnin af þremur. Farin verður 26 km götuhjólaleið sem leidd er hjólandi af auðlindasérfæðingum OR. Þau munu hjóla með þátttakendum um strandlengju borgarinnar og fræða fólk um þessa mikilvægu en földu starfsemi sem enginn vill vera án.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta á hjólum/rafhjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.
Þráinn Friðriksson, Sædís Ólafsdóttir og Ingvi Gunnarsson auðlindasérfræðingar hjá OR leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.