Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Fjölskylduhátíð í Elliðaárdal // Listahátíð

Elliðaárdalurinn er uppfullur af lífi og nýjum ævintýrum sem breytast dag frá degi. Borgarbúum og öðrum gestum gefst tækifæri til að kynnast þessum stórbrotna stað betur þegar Listahátíð og Elliðaárstöð halda fjölskylduhátíð í Elliðaárdal laugardaginn 6. júní.

Listafólk fyllir svæðið af töfrum og dýpkar tengsl okkur við náttúruna í gegnum listrænar uppákomur og viðburði. Sirkuslistafólk Hringleiks sýnir hrífandi listir sínar sem eru í sífelldri þróun. Tónlistarhópurinn Silfá býður for­vitnum áheyrendum á öllum aldri að ganga með sér eftir skógar stígum dalsins og meðfram ánni, hlusta á fugla­söng og árnið í samspili við víóluleik, píanó og söng.

Úr verða einstakir tónleikar þar sem tónlist og hljómur sumarsins renna saman í eitt. Í gestastofu Elliðaárstöðvar gefst færi á að taka þátt í dans upplifuninni Hvernig getum við rofið þennan hring? Dansdúettinn Project HOFIE býður áhorfendum að íhuga með sér, hægja á, njóta sköpunar þeirra og um leið að skapa í núinu, teikna og mála myndir.

Aðrir viðburðir