Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Grímusmiðja og draugaganga í Elliðaárdal

Höfuðstöðin og Elliðaárstöð sameinast fyrir hrekkjavöku og bjóða upp á draugalega dagskrá fyrir fjölskyldur frá kl. 16:00 – 19:00 miðvikudaginn 25. október. Dagskráin hefst í Höfuðstöðinni kl 16:00 þar sem boðið verður upp á grímusmiðju til kl. 17:30, en þá hefst draugaganga frá Höfuðstöðinni sem endar í Elliðaárstöð um kl. 18:00. Við tekur frjálst draugaflæði í Elliðaárstöð þar sem hægt er að leita að fleiri draugum, leika sér á útisvæði Elliðaárstöðvar, kíkja inn í 100 ára gamla rafstöð eða tilla sér inn á Á Bístró og gæða sér á gómsætri graskerssúpu og ræs krípís kökur á sérstöku hrekkjavökutilboði, þar er opið til kl. 20:00.

Grímusmiðja Höfuðstöðvarinnar 16:00-17:30

Sagt er að hefðin að klæðast búningum á hrekkjavöku hafi upphaflega byrjað sem vörn gegn óvættum sem heimsótti mannfólkið en talið er að skilin milli okkar heims og handanheimsins séu þynnri á þessum tíma. Búðu til þína eigin hrekkjavökugrímu í Höfuðstöðinni og vertu með hana í draugagöngu að Elliðaárstöðinni. Flottar grímur og litrík efni verða í boði. Fullorðnir geta notið dýrindis kaffis á meðan krakkarnir fikta við skelfilegu grímurnar.

Aðgangur að grímuverkstæði: 590kr. fyrir hverja manneskju

Draugaganga Elliðaárstöðvar 17:30-18:00

Vissuð þið að það eru til nokkrar mismunandi tegundir af draugum? Í Draugagöngunni mun þjóðfræðingurinn Ragnhildur leiða okkur um drungalega stíga Elliðaárdals frá Höfuðstöðinni að Elliðaárstöð í leit að afturgöngum, uppvakningum og fleiri tegundum drauga. Gangan verður á íslensku. 

Draugagangan er ókeypis og eru öll hjartanlega velkomin. Við leggjum til að allir klæðist samkvæmt veðri.

// ENG //

Mask Workshop and Ghost Walk in Elliðaárdalur

Höfuðstöðin and Elliðaárstöð join forces for Halloween and offer a spooktacular program for families from 4:00 PM to 7:00 PM on Wednesday, October 25th. The program kicks off at Höfuðstöðin at 4:00 PM, where a mask-making workshop will be available until 5:30 PM. Then, the ghost walk departs from Höfuðstöðin, ending at Elliðaárstöð around 6:00 PM. You are welcome to explore the ghost-friendly atmosphere at Elliðaárstöð, search for more ghosts, enjoy outdoor activities around Elliðaárstöð, peek into the 100-year-old power station, or treat yourself to a delicious pumpkin soup and rice creepies cakes at Á Bístró which is open till 8:00 PM.

Höfuðstöðin’s Mask Workshop 16:00-17:30

It is said that the tradition of wearing costumes during Halloween originally began as a way to shield oneself from the supernatural entities that visited people. The boundaries between our world and the otherworld were believed to be thinner during this time. Create your own Halloween mask at Höfuðstöðin and bring it with you on the ghost walk to Elliðaárstöð. Various cool masks and colorful materials are available. Adults can enjoy a delicious coffee while the kids tinker with the scary masks.

Mask workshop entry: 590kr. per person

Elliðaárstöð’s Ghost Walk 17:30-18:00

Did you know there are various types of ghosts? In the Ghost Walk, folklorist Ragnhildur will lead us through the eerie paths of Elliðaárdalur from Höfuðstöðin to Elliðaárstöð in search of zombies, specters, and other ghosts. The ghost walk will be in Icelandic.

The Ghost Walk is free and we warmly welcome all to participate. We suggest you dress according to the weather.

Aðrir viðburðir