Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Hamingjuhlaup Samtakanna 78 og Kristals

Hefur þig alltaf dreymt um að hlaupa í gegnum confetti? Svitna með glimmer í andlitinu? Að heyra hvað þú ert fabjúlös í hlaupagallanum? ✨️🏃

Samtökin ’78 halda í annað sinn Hamingjuhlaupið sem fer fram þann 16. maí 2026, á alþjóðlegum degi gegn hinseginfordómum. Hamingjuhlaupið er 7,8 km götuhlaup um Elliðaárdalinn, stútfullt af skemmtilegum uppákomum á leiðinni 💃

SKRÁNING

Hægt er að skrá sig í 7,8 km vegalengd eða 3 km gleðiskokk. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti í 7,8 km hlaupi í kvennaflokki, karlaflokki og kváraflokki auk þess sem veit verða verðlaun í krakkaflokki. Jafnframt verður keppt í 50m hlaupi á hælaskóm þar sem veitt verða verðlaun fyrir bæði besta tímann og fyrir tígulegustu tæknina 👠

Skráning er 5.000 kr en börn 12 ára og yngri greiða aðeins 1.500 kr. Innifalið í skráningu er miði í hlaupið, regnbogaglaðningur, hlaupanúmer með tímaflögu, skemmtun í upphitun og einstök upplifun á brautinni.

AFHENDING GAGNA

Miðvikudagur og föstudagur – 13. og 15. maí
Hægt verður að sækja gögn á miðvikudag og föstudag fyrir hlaup á skrifstofu Samtakanna ’78, Suðurgötu 3, 101 Reykjavík.

Opið er frá 10:00-20:00
Fimmtudagur – 14. maí (Uppstigningardagur)
Einnig verður hægt að sækja gögn á skrifstofu Samtakanna ’78 á fimmtudeginum fyrir hlaup.

Opið er frá 13:00-16:00.

DAGSKRÁ
Laugardagur – 16. maí

10:00 – Svæði við Elliðaárstöð opnar
10:30 – Upphitun og skemmtun 🥳 Keppt í 50m hlaupi á hælaskóm 👠 Glimmerstöð fyrir þau sem vilja skína á brautinni ✨️
11:00 – Ræst í hlaupið 🏃‍♀️🏃🏃‍♂️
12:30 – Tímatöku og dagskrá lýkur

Information in English: www.corsa.is/en/hamingjuhlaupid

Aðrir viðburðir