Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Haustkransanámskeið Elliðaárstöðvar

  • Coins 12.500 kr.
  • Calendar 15. september - 18. september 2022
  • Clock 17:00
  • Location Pin Sjá á korti

Viltu læra að gera fallegan haustkrans úr villtri náttúrunni?

Dagana 15.-18. september mun Elliðaárstöð í samvinnu við Halldóru Lísu Bjargardóttur, eigandi blóma- og hönnunarstúdíósins Litahlíðar og fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands bjóða upp á hið geysivinsæla haustkransanámskeið.

Námskeiðið hefst á stuttri skógargöngu í skapandi umhverfi Elliðaárdalsins þar sem þátttakendur safna villtu hráefni skógarins í kransana sem settir eru saman í Gestastofu Elliðaárstöðvar undir handleiðslu Halldóru Lísu.

• Námskeiðin verða 4 og er fjöldi þátttakenda takmarkaður við 12:
15. september 17-19
16. september 17-19
17. september 10-12

• Verð á hvert námskeið er 12.500 kr. og greitt á staðnum. Innifalið í verði er allt hráefni og leiðsögn
• Skráning á námskeiðið fer fram í gegnum netfangið elisabetj@or.is eða í síma 6183233, vinsamlegast tilgreindu hvaða dag þú vilt koma.
• Mætið tímanlega við Gestastofu Elliðaárstöðvar í Elliðaárdal, Rafstöðvarvegi 6

Aðrir viðburðir