Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Hljómur árstíðanna í Elliðaárdal – VOR

Undanfarna mánuði hafa söngkonan Heiða Árnadóttir, píanóleikarinn Tinna Þorsteinsdóttir og víóluleikarinn Guðrún Hrund Harðardóttir stundað reglulega göngutúra í Elliðaárdalnum þar sem þær hafa hlustað á hljóm árstíðanna og sótt innblástur í náttúruna. Nú bjóða þær fjölskyldum og forvitnu fólki á öllum aldri með sér í hlustunargöngu í náttúrunni sem um þessar mundir er að vakna af vetrardvala. Á vel völdum stoppustöðvum bjóða þær upp á lifandi tónlistarflutning sem kallast á við fuglasöng og árnið, og á dagskrá eru einnig vorlaga-samsöngur og þátttökuverk þar sem tónleikagestum býðst að spila á efnivið úr náttúrunni.

Tónleikagestir safnast saman á bakvið kaffihúsið, rétt við leikvöllinn og ganga af stað í fylgd tónlistarkvennanna kl.17.

Vinsamlegast mætið í þægilegum skóm og klædd eftir veðri.

Verkefnið er unnið í samvinnu við Elliðaárstöð og styrkt af Reykjavíkurborg. Aðgangur er ókeypis.

Aðrir viðburðir