Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Matsveppirnir í skóginum – sveppaganga & fræðsla

  • Coins Aðgangur ókeypis
  • Calendar 13. september 2022
  • Clock 17:00
  • Location Pin Sjá á korti
Áhugi á náttúrunni og hvernig við getum nýtt okkur það sem vex í kringum okkur hefur aukist mikið á síðustu árum. Í þessari fræðslugöngu röltum við með Helenu Mörtu Stefánsdóttur skógvistfræðingi um skóginn í Elliðaárdalnum og lærum einfaldar aðferðir til að þekkja nokkrar algengar tegundir matsveppa sem finnast í skógunum.
Vinsamlegast mætið klædd eftir veðri og þau sem vilja tína sveppi, geta tekið með sér körfu eða bréfpoka og lítinn hníf. Einnig er gott að hafa með sér sveppahandbók ef slík er til á heimilinu.
Gangan hefst kl. 17:00 fyrir aftan Rafstöðina, Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.

Aðrir viðburðir