Menningarminjadagar Evrópu 2024 – nýr áfangastaður í Elliðaárstöð
-
Aðgangur ókeypis
-
15. september 2024
-
15:00
-
Sjá á korti
Í tilefni af Menningarminjadögum Evrópu 2024 sem haldnir eru í september býður Elliðaárstöð gestum og gangandi til tveggja leiðsagna um Elliðaárstöð og nágrenni. Fyrri leiðsögnin er fimmtudaginn 12. september með Stefáni Pálssyni, sagnfræðingi og síðari sunnudaginn 15. september með Magneu Guðmundsdóttur, arkitekt.
Í leiðsögninni Að virkja hugvit – nýr áfangastaður í Elliðaárstöð segir Magnea Guðmundsdóttir arkitekt úr hönnunarteyminu Tertu frá hönnunarnálgun Elliðaárstöðvar.
Gamla rafstöðin í Elliðaárdalnum markaði upphaf rafvæðingar í Reykjavík árið 1921. Í dag hefur húsaþyrping Elliðaárstöðvar fengið nýtt hlutverk sem vísindamiðlunar- og viðburðarsvæði. Þar sem vatnsorkan var virkjuð fyrr á tímum er nú hugvitið virkjað. Innblástur hönnunarinnar er framsýni fyrri tíma og ósýnileg virkni veitukerfanna. Lagt er upp úr því að nýta það sem fyrir er á svæðinu í samhljóma við náttúruna.
Þátttaka er ókeypis en fólk er beðið um að klæða sig eftir veðri.
Hlökkum til að sjá ykkur!