Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Nýsköpun & spjall – TENGJA

Verið velkomin á Nýsköpun & spjall – TENGJA

📅Föstudaginn 3. október 2025 🕒11:30-12:30📍Elliðaárstöð

Meistaranemar í Design and New Environment við Listaháskóla Íslands spjalla um verkefnið sitt TENGJA sem þau unnu í sumar í samstarfi við Veitur. Verkefnið var styrkt af Rannís, Rannsóknarmiðstöð Íslands.

🔥TENGJA er upphitaður bekkur sem nýtir bakvatn – vatn sem er búið að renna í gegnum ofnana okkar en inniheldur enn töluverðan varma sem annars fer til spillis. Sjá nánar um verkefnið hér.

💡Nýsköpun & spjall er viðburðaröð og vettvangur fyrir frumkvöðla og skapandi fólk til að segja frá verkefnum sínum, skapa samtal og veita innblástur. Frábært tækifæri til að kynnast efnilegum frumkvöðlum og tengjast lykilaðilum í nýsköpunarumhverfinu.

🍲Á kaffihúsinu Elliða er hægt að halda spjallinu áfram yfir súpu og nýbökuðu foccacia brauði eða næla sér í eitthvað annað girnilegt af matseðlinum. Elliði er opinn alla daga milli kl. 11-17 utan mánudaga.

Aðrir viðburðir