Run in the Dark – Reykjavík
-
-
13. nóvember 2024
-
19:00
-
Sjá á korti
Miðvikudaginn 13. nóvember kl. 19:00, mun hinn alþjóðlegi hlaupaviðburður Run in the Dark fara fram á Íslandi í þriðja sinn!
Megið markmið hlaupsins er að safna fyrir rannsóknum á lækningu á mænuskaða og fer hlaupið fram samtímis, víðsvegar um heiminn. Við munum hlaupa saman í Elliðarárdalnum, á sama tíma og hlaupið verður á fjölmörgum stöðum um heim allan.
Þátttökugjald er 4150 kr. og fer skráning fram á heimasíðu Run In The Dark – SKRÁNING
5 Km MapMyRun Linkur
10 km MapMyRun Linkur
Hlaupaleiðin er aðgengileg flestum, hvort sem er hlaupið hægt eða hratt. Allir hlauparar byrja og enda hlaupið á sama stað. Fyrstu 2,5 km leiðarinnar eru þeir sömu fyrir alla hlaupara, síðan snúa 5 km-farar við og hlaupa til baka á endalínu. 10 km-farar snúa við á 5 kílómetra og hlaupa til baka yfir sama endamark.
Þau sem vilja kynnast Mark Pollok og lífsförunauti hans Simone George geta horft á áhrifaríkan fyrirlestur þeirra sem nefnist Ástarbréf til raunsæis á sorgartímum. Í honum fjalla þau um togstreitu bjartsýni, raunsæi og vonar, auk þess sem þau segja frá byltingarkenndu starfi sínu sem miðar að því að lækna mænuskaða – Fyrirlesturinn má finna hér
Skipuleggjendur hlaupsins í ár eru Global Shapers Reykjavík Hub