Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Myrkrahlaupið – Run in the dark

Miðvikudaginn 9. nóvember kl. 20 einmitt þegar svartasta skammdegið er að skella á, ætlum við að bregða á leik í Elliðarárdalnum og taka þátt í alþjóðlega hlaupaviðburðinum Run in the dark eða Myrkrahlaupinu eins og það gæti útlagst á íslensku.
Hlaupið er 5km og 10km fer fram samtímis um víðs vegar um heiminn en með því er safnað fyrir rannsóknum og lækningu á mænuskaða.
Stofnandi hlaupsins er írski útivistar- og ævintýramaðurinn Mark Pollock. Saga hans er einstök, 22 ára gamall missti hann sjónina. Þrátt fyrir það byggði hann upp íþrótta- og ævintýraferil þar sem hann hljóp Gobi-eyðimerkurmaraþonið og var fyrsti blindi maðurinn til að ganga yfir Suðurpólinn.
Lífið ætlaði honum þó enn fleiri áskoranir því árið 2010 lenti hann í slysi sem hafði þær afleiðingar að hann hlaut alvarlegan mænuskaða og lamaðist. Leiðangur Marks núna miðar að því að finna leiðir til að safna fyrir rannsóknum og lækningu á mænuskaða. Skráning fer fram hér í gegnum heimsíðu Run in the dark. 

Við hvetjum fólk til að lýsa upp skammdegið og taka þátt í þessum fallega viðburði og láta gott af sér leiða með því að styðja við rannsóknir á mænuskaða.

Þau sem vilja kynnast Mark Pollok og lífsförunauti hans Simone George geta horft á ógleymanlegan fyrirlestur þeirra sem nefnist Ástarbréf til raunsæis á sorgartímum. Í honum fjalla þau um togstreitu bjartsýni, raunsæi og vonar auk þess sem þau segja byltingarkenndu starfi sínu sem miðar að því að lækna mænuskaða.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði að hlaupi/loknu!
Skráðu þig í hlaupið hér
Viðburður á Facebook
Verð: 3700 kr.
Allur ágóði rennur til rannsókna og lækninga á mænuskaða.

Aðrir viðburðir