Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Ofurhlauparar með bækistöðvar í Rafstöðinni

23. október 2024
Landslið Íslands skipað 15 bestu bakgarðshlaupurum síðustu tveggja ára. Mynd: Náttúruhlaup.

Það voru sannkallaðir ofurhlauparar sem tóku þátt í Heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupum sem fram fór dagana 19. til 22. október. Hlaupið hófst 12 á hádegi laugardaginn, 19. október og lauk aðfaranótt þriðjudagsins, 22. október. Þorleifur Þorleifsson stóð uppi sem sigurvegari í Íslandshlutanum og setti í leiðinni nýtt Íslansmet þegar hann kláraði 62 hringi.

Í ár tóku 63 lönd þátt en mótin hefjast öll á sama tíma. Fimmtán bestu bakgarðshlauparar í hverju landi fyrir sig kepptu saman sem lið en Ísland var eina landið sem voru með fleiri konur en karla í liðinu. Það lið sem fór samtals flesta bakgarðshringi sigraði keppnina.

Keppendur hlupu 6,7 km hring um Elliðaárdalinn sem var alltaf farinn á heila tímanum. Keppnin var á vegum Náttúruhlaupa og í samstarfi við Elliðaárstöð. Keppendur höfðu bækistöðvar í Rafstöðinni og voru því sannarlega umlukin orkumiklu andrúmslofti. Það sýndi sig og sannaði því íslenska liðið hljóp 595 hringi og lenti í 14. sæti sem er frábær árangur!

Rúmlega 5.550 manns lögðu leið sína í Elliðaárstöð um helgina til að hvetja keppendur og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast dagleiðina sem keppendur fóru hér.

Bækistöðvar keppenda í rafstöðinni. Mynd: Náttúruhlaup
Rásmarkið var staðsett fyrir framan rafstöðina. Mynd: Náttúruhlaup
Íslenska liðið hljóp alls 595 hringi sem jafngildir 3.986,5 km! Mynd: Náttúruhlaup.
Þorleifur Þorleifsson Íslandsmethafi og sigurvegari keppninnar. Mynd: Náttúruhlaup

Aðrar fréttir