Nýsköpun og spjall – Sögur sem kveikja neista (og gera ósýnilegt sýnilegt)
-
Aðgangur ókeypis
-
11. nóvember 2025
-
14:30
-
Sjá á korti
Hvernig getum við gert flókin viðfangsefni aðgengileg, eftirminnileg og skemmtileg? Margrét Hugadóttir, leiðtogi vísindamiðlunar í Elliðaárstöð segir frá því hvernig hún notar kraft frásagnarinnar (storytelling) í vísindamiðlun. Margrét spjallar um fræðsluefnið Ósýnilegt verður sýnilegt og veitir leiðsögn um sýninguna Hjartastrengir & vatnsæðar.
💡Nýsköpun & spjall er viðburðaröð og vettvangur fyrir frumkvöðla og skapandi fólk til að segja frá verkefnum sínum, skapa samtal og veita innblástur. Frábært tækifæri til að kynnast efnilegum frumkvöðlum og tengjast lykilaðilum í nýsköpunarumhverfinu.