Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Til baka

Ertu í stuði!?

Gestir í rafstöð

Skólaheimsókn: Ertu í stuði!?  Leiðsögn um rafstöðina í Elliðaárstöð og tilraun með stöðurafmagn. Í þessari heimsókn læra nemendur um undraheim raforkunnar og þær tækniframfarir sem áttu sér stað í kjölfar rafvæðingar.

Fræðslan er ætluð nemendum á miðstigi grunnskóla.
Heimsóknin tekur 90 mínútur.
Hámarksfjöldi er 25 nemendur.
Vinsamlegast látið tvo starfsmenn fylgja hópnum.  

Helstu hugtök: Orka, stöðuorka, hreyfiorka, efnaorka, raforka, frumeindir, rafeindir, róteindir, nifteindir, rafhleðsla.

Vinnan á verkstæðinu tókst mjög vel, þar sem krakkarnir gerðu engla og drauga með stöðurafmagni

Kennari í Reykjavík

Rafstöðin í Elliðaárdal

Rafstöðin í Elliðaárdal lýsti á sínum tíma leiðina til framtíðar, þegar hafið var að virkja Elliðaárnar til að framleiða rafmagn. Framsýni fyrri tíma og ósýnileg virkni veitukerfanna er innblástur Elliðaárstöðvar. Í stað þess að virkja vatn og framleiða raforku, sem áður var gert, er Elliðaárstöð nýr áfangastaður í hjarta Reykjavíkur þar sem lögð er áhersla á að virkja nýsköpun, hugvit og fólk.

Get ég búið til raforku?

Orka er þess eðlis að ekki er hægt að eyða henni eða búa hana til. Orka getur þó breytt um form. Kannski þekkjum við orku helst í tengslum við matinn okkar, en úr fæðunni okkar fáum við efnaorku.

Í Elliðaárstöð var raforka gerð með því að umbreyta stöðu og fallorku vatns í raforku.

 

Tilraun í rafstöð

Komdu með bekkinn í rafstöðina!

Í þessari heimsókn fræðast nemendur um raforku og heimsækja rafstöðina í Elliðaárstöð.

Bóka heimsókn

Aðrar fréttir