Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Fyrsti viðburðurinn í nýrri gestastofu

16. apríl 2025
Viðburðurinn Prosecco og pitch fór fram í nýrri gestastofu Elliðaárstöðvar og heppnaðist einstaklega vel.

Fyrsti viðburðurinn í nýuppgerðu viðburðarrými gestastofu Elliðaárstöðvar fór fram 9. apríl síðastliðinn. Viðburðurinn hét Prosecco og pitch og var hluti af lokasprettinum í Hringiðu+ sem er viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir.

Gestastofan er staðsett í gömlu straumskiptistöðinni sem tók við rafmagni frá virkjunum við sogið.

Þátttakendur á Prosecco og pitch kynntu spennandi lausnir sem byggðu á hugmyndum hringrásarhagkerfisins á 90 sekúndum. Snert var á sviðum eins og úrgangsnýtingu, sjálfbærri orku, matvælatækni og byggingariðnaði.

Gríðarleg stemming ríkti þar sem fólk gæddi sér á dýrindis réttum frá Elliða og DJ Dóra Júlía hélt uppi stuðinu. Við erum gríðarlega spennt fyrir því að geta opnað dyr gestastofunnar og haldið fleiri viðburði í rýminu.

Aðrar fréttir