Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Hryllilegir hrekkjavökuleikir

29. október 2024
Draugalegur draugur í skrúðgarðinum í Elliðaárstöð þar sem komið hefur verið fyrir þónokkrum draugum.

Þegar rökkva fer og veturinn gengur í garð þýðir það hrollvekjandi árstími, Hrekkjavakan. Hún er haldin hátíðleg 31. október ár hvert. Þessi árstími getur verið skuggalegur og því getur verið gaman að bæta í hrollvekjuna. Hrekkjavökuleikir Elliðaárstöðvar flétta saman tilraunir og leiki með rafhleðslur, ljós og skugga á skapandi hátt sem gera má hvar sem er með efni og áhöldum sem finnast á flestum heimilum.  

Getur þú látið þinn draug fljúga? Eða viltu kannski búa til skuggalegt skuggaleikhús.  

Draugar í stuði  //  Skuggalegt skuggaleikhús  

 

👻Elliðaárstöð er draugastöð  

Elliðaárstöð er vagga rafvæðingar Reykjavíkur en Rafstöðin var gangsett árið 1921. Fyrsta rafmagnið sem framleitt var í Elliðaárstöð var notað fyrir götulýsingu og því er stundum sagt að rafmagnið hafi drepið draugana. Fyrir tíma rafmagnsins var myrkur, ljósið var sparað og fólk þurfti að lifa í dimmum híbýlum og eins og við vitum getur ýmislegt leynst í myrkrinu. Þegar rafmagnið kom og ljós fór að skína allan sólahringinn gátu draugarnir ekki falið sig í myrkrinu og hurfu því af götum borgarinnar. Oft er talið er að þeir feli sig í gömlum byggingum og því má leiða líkum af því að þeir feli sig í Rafstöðinni. 

Draugar í stuði

Getur þú búið til þinn eigin draug sem flýgur án þess að þú snertir hann?

Opna
Skuggalegt skuggaleikhús

Skuggalegt leikhús

Verður þitt skuggaleikhús skuggalegt hrekkjavökuleikhús eða aðeins hálfskuggaleg haust saga?

Opna

🎃Um Hrekkjavöku

Áður fyrr taldi fólk tímann í vetrum og nóttum, fremur en árum og dögum. Vetrarbyrjun er um mánaðarmótin október og nóvember og var því nýár á þessum mánaðarmótum. Keltneska hátíðin Samhain er fyrirmynd hrekkjavöku en þá voru færðar þakkir fyrir uppskeru sumarsins og boðin koma vetursins. Á þessum umskiptingatímum var talið að þunnt væri á milli heima hinna lifandi og dauðu og að hægt væri að skynja handan heima. Sambærileg hátíð á Ísland og Norðurlöndunum áður en þau tóku kristni var hátíðin veturnætur sem var haldin í lok október.

Lestu meira um sögu Hrekkjavöku á Vísindavef Háskóla Íslands hér.

Aðrar fréttir