Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Orkuspurningar – leikur

Farið í leik og lærið um orkuna á sama tíma á svæði Elliðaárstöðvar.

Í þessum leik er kennari eða starfsmaður með lista af já eða nei spurningum. Krakkarnir raða sér upp fyrir aftan ákveðna línu.

Starfsmaður les upp spurningu og krakkar hoppa á línuna ef svarið er já en standa kyrr ef svarið er nei. Þegar öll hafa svarað er tekið stutt spjall um svarið og svo fara öll aftur á upphafsstað. Það er skemmtilegt að bæta inn fleiri spurningum sem starfsmanni dettur í hug.

Spurningar:

Hefur þú fengið straum?

Við fáum straum þegar við höfum t.d. nuddað ullarsokkum við teppi, eða snert eitthvað sem er með neikvæða rafhleðslu. Þá stekkur rafstraumurinn úr hlutnum sem er hlaðinn, í gegnum okkur og beint niður í jörðina.

Hefur þú séð eldingu slá niður?

Elding er í raun eins og risastór straumur! Skýin nuddast saman í þrumuveðri og í þeim hleðst upp neikvæð rafhleðsla. Þegar hleðslan er orðin mjög mikil, leitar hún niður og slær niður í jörðina!

Hefur þú upplifað rafmagnsleysi?

Spyrja hvar – e.t.v. var það bara öryggi sem sló út í húsinu, eða jafnvel rafmagnsleysi í öllum bænum.

Öll raftæki á heimilinu og ljós nota rafmagn. Veist þú hvaðan rafmagnið sem er notað heima hjá þér kemur? Já/nei

Spyrja krakkana sem standa á línunni.

Segja annars svarið: Raforkan kemur frá virkjunum, þar sem raforka er búin til með vatnsorku og jarðvarma (vatnsaflsvirkjunum, gufuvirkjunum).

Skrúfar þú fyrir vatnið á meðan þú burstar tennurnar?

Það er góð regla að skrúfa fyrir kranann á meðan við burstum tennurnar. Annars rennur vatnið bara út í sjó, án þess að við höfum notað það.

Er hreint vatn mikilvægt fyrir heilsuna?

Hreint vatn er lífsnauðsynlegt. Í dag eru enn lönd, þar sem fólk hefur ekki aðgang að hreinu vatni. Það getur smitast af sjúkdómum sem eru stundum lífshættulegir. Það eru mannréttindi að hafa aðgang að hreinu vatni.

Þarf alltaf að kveikja ljósin á kvöldin?

Nei / Já – Það er misjafnt hvort það er vetur eða sumar, hvort að við þurfum að kveikja mikið af ljósum. Á sumrin er mikil dagsbirta og á veturna er mikið myrkur.

Hvað má fara í klósettið?  (Hraða spurningar, röð af nokkrum orðum, þau eiga að hlaupa á línuna þegar hluturinn má fara í klósettið)

Blautþurrkur? (nei)

Klósettpappír? (já)

Piss? (já)

Rusl? (nei)

Kúkur? (já)

Eyrnapinnar? (nei)

Blóð? (já)

Hár (nei má ekki – á að fara í rusl)

Gubb? (já)

Lokar þú glugga þegar úti er kalt?

Þegar það er kalt úti er gott að loka gluggunum, annars sleppur varminn út og það er sóun á orku alveg eins og ef maður hefur alltaf kveikt á ljósum.

Aðrar fréttir