Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Vorferð í Elliðaárstöð

5. maí 2026

Í Elliðaárstöð er skemmtilegt útisvæði sem hentar einstaklega vel fyrir skóla og frístundaheimili sem vilja fara í ævintýraferð. Tilvalinn staður til að koma og njóta í vor og sumar.

Það er ýmislegt hægt að gera til dæmis er alltaf gaman að leika og sulla í Vatnsleikjagarðinum og við mælum með að öll komi vel búin fyrir bleytu sama hvernig viðrar. Á svæðinu er svo ratleikurinn Leitin að orkunni sem notar QR – kóða. Með því að spreyta sig á honum skoðar maður svæðið allt og fræðist um orku og vísindi í leiðinni.

Á túninu er svo hægt að skella sér í leiki með hópinn. Hér fyrir neðan eru tillögur að skemmtilegum leikjum sem gaman er að fara í.

Á svæðinu er svo nóg af nestisborðum og nestisskýli fyrir rigningadagana.

Á opnunartíma Gestastofunnar, miðvikudag til sunnudags milli 13 og 16 er hópum að sjálfsögðu velkomið að líta inn á sýninguna Hjartastrengir og vatnsæðar. Þar má finna svarið við spurningunni: Hvernig virkar borgin okkar á bak við tjöldin?

Dofri segir

Sjáiði stóra turninn? Hvað er þetta eiginlega? Þetta er gufuborinn Dofri! Verðmætasta vinnuvél Íslendinga. Kynnið ykkur Dofra á skiltinu fyrir framan hann og skellið ykkur í skemmtilega útgáfu af leiknum Símon segir.

Sjá reglur

Hreinsistöð hreinsistöð

Fráveitukerfi borgarinnar er ekkert smá mikilvægt! Við þurfum að passa að setja ekkert í klósettið sem ekki má. Farið með hópinn í leikinn Hreinsistöð, hreinsistöð! þar sem hreinsistöðin reynir að passa upp á að engar blautþurrkur komist út í sjó.

Sjá reglur

Leitin að orkunni!

Viltu fara í ratleik? Skoðaðu kortið sem birtist þegar þú smellir á takkann hér fyrir neðan. Fylgdu númerunum og leitaðu að QR-kóðum. Með því að skanna kóðana á hverri stöð má finna spurningu eða áskorun um orku, vísindi og veitukerfi borgarinnar.

Skoða nánar

Hjartastrengir og vatnsæðar

Hvernig virkar borgin okkar á bak við tjöldin? Á þessari skemmtilegu vísindasýningu kynnist þú ferðalagi orkunnar og lærir um orku og vísindi. Sýningin er ætluð börnum á öllum aldri.

Opið miðvikudag – sunnudags milli 13 og 16.

Skoða nánar

Aðrar fréttir