Vorið vaknar í Elliðaárstöð // HönnunarMars 2026
-
Aðgangur ókeypis
-
10. maí 2026
-
13:00
-
Sjá á korti
Handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2025 sameina krafta sína og bjóða gestum HönnunarMars upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá í Elliðaárstöð sunnudaginn 10. maí, kl. 13:00 – 15:00. Þar koma saman Elliðaárstöð – staður ársins, Fischersund – verk ársins og Lauf – vara ársins.
Áhersla verður lögð á sköpun, samveru og upplifun þar sem gestir á öllum aldri geta tekið virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá eða einfaldlega notið þess að vera í fallegu og söguríku umhverfi Elliðaárstöðvar.
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi, með sérstakri áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.
Frekari upplýsingar um verðlaunahafana má finna hér
Dagskrá í Elliðaárstöð:
➞ Lauf
Samhjól frá Lauf Cycles á Grandagarði 1b. Förum af stað kl. 12.00 og hjólum á léttum hraða Reykjavíkurhringinn að Elliðaárstöð.
Lauf býður svo gestum að prófa hjólin í Elliðaárstöð frá kl. 13:00 – 15:00.
➞ Fischersund
Ilmratleikur á útisvæði Elliðaárstöðvar í boði Fischersund frá kl. 13:00 – 15:00.
➞ Elliðaárstöð
Þverfaglega hönnunarteymið Terta býður upp á leiðsögn um svæði Elliðaárstöðvar þar sem gestir fá innsýn í hönnunarnálgun teymisins við uppbyggingu og mótun svæðisins. Hönnunarteymið tekur á móti gestum við Vatnsleikjagarð Elliðaárstöðvar kl. 13:30.
Öll í bátana! – barnamenningarhönnuðurinn Ninna Þórarinsdóttir leiðir nýsköpunarsmiðju fyrir börn í Gestastofu Elliðaárstöðvar frá kl. 13:00 – 15:00.
➞ Carbfix
Í tilefni af HönnunarMars býður Carbfix gestum að skoða Borholuhúsið, eitt af verkum hönnuðarins og arkitektsins Einars Þorsteins Ásgeirssonar (1942–2015). Einar Þorsteinn byggði hugmyndir sínar á þeirri sannfæringu að hugvit, sköpunarkraftur og vísindi gætu mótað betri heim.
Borholuhúsið hefur verið áberandi í myndmáli fyrir niðurdælingu Carbfix á CO₂ og er í dag orðið táknmynd nýsköpunar í loftslagsaðgerðum. Það hefur vakið athygli víða um heim, meðal annars í Netflix-seríu Bill Gates og á forsíðu National Geographic.
Inni í borholuhúsinu verður einnig hægt að skoða borkjarna Carbfix sem veita innsýn í hvernig CO₂ binst bergi og verður að steini djúpt í jarðlögunum.
Við hvetjum öll áhugasöm til að líta við og skoða borholuhúsið á pop-up sýningunni „Opið borholuhús Carbfix’’ Þar mætast frumleiki Einars og lausnir Carbfix í sameiginlegri sýn: að byggja sjálfbærari heim með sköpunargáfu, hönnun og vísindum.