Á dögunum tóku krakkarnir í Iðnum og tækni áskorun okkar í Elliðaárstöð og hönnuðu sitt eigið draumaheimili.
Ellefu nemendur úr Árbæjarskóla þurftu að beita allri þeirri þekkingu sem þau hafa viðað að sér í valgreininni Iðnir og Tækni hjá Orkuveitunni í haust.
Sköpunarkrafturinn virkjaður
Það reyndi á sköpunarkraftinn, lausnaleit, rökhugsun og skilning þeirra á grundvallaratriðum hönnunarhugsunar verkfræðinnar við bygginguna.
Hvaðan kemur kalda og heita vatnið? En rafmagnið?
Að sjálfsögðu þurftu þau að staðsetja húsin og sýna hvaðan kalda vatnið og heita vatnið kom að húsinu, hvaðan rafmagnið og ljósleiðarinn kom og hvernig fráveitu var háttað.
Samstarfsverkefni OR og Árbæjarskóla
Verkefnið var lokaverkefni í valgreininni Iðnir og tækni sem Orkuveita Reykjavíkur hefur boðið 10. bekkingum í Árbæjarskóla upp á sl. 8 ár.
Ungmenni sækja valáfanga sem hefur það markmið að vekja áhuga nemenda á iðn- og tæknistörfum og kynna þau fjölbreyttu störf og starfstækifæri sem slíkt nám hefur upp á að bjóða. Námið er fjölbreytt og byggir á fræðslu, vettvangsferðum og verklegum æfingum. Öll fyrirtæki samstæðunnar taka þátt í verkefninu og í kennara- og undirbúningshópnum eru um 40 starfsmenn.
Vettvangsferðir og verklegar æfingar
Í haust fóru nemendur í heimsókn í Gvendarbrunna, Hellisheiðavirkjun ON, Hreinsistöð Veitna í Klettagörðum, Ljósleiðarann og að sjálfsögðu á verkstæði Veitna á Bæjarhálsi þar sem þau lærðu undirstöðuatriði í rafvirkjun, pípulagningum og stálsmíði en þau bjuggu meðal annars til lampa, brunnstiga og tengdu blöndunartæki.
😎🥰⚒️👩🏻🔧👨🔧⚡️💧 Takk fyrir alla fræðsluna í vetur ! #veitur #on #ljósleiðarinn #or
Iðnir og tækni hjá Orkuveitu Reykjavíkur
Valgreinin Iðnir og tækni hefur það að markmiði að auka áhuga nemenda á iðn- og tæknigreinum og kynna þau fjölbreyttu störf og tækifæri sem slíkar greinar veita aðgang að. Námið er fjölbreytt og byggir á fræðslu, verkefnum, vettvangsferðum og verklegum æfingum. Valgreinin var þróuð með Árbæjarskóla og hefur nemendum 10. bekkja verið boðin þátttaka.
Iðnir og tækniFrá árinu 2015 hafa yfir hundrað nemendur kynnt sér fjölbreytt iðn og tæknistörf sem unnið er að innan Orkuveitu Reykjavíkur. Dótturfyrirtæki Orkuveitu samstæðunnar sjá Reykvíkingum og fleirum fyrir köldu og heitu vatni, fráveitu, raforku og ljósleiðara. Starfsfólk samstæðunnar eru hinar sönnu ofurhetjur borgarinnar því að með þeirra hjálp fá borgarbúar að njóta lífsgæða eins og rennandi vatns, heitra húsa, heilsusamlegrar fráveitu og raforku.