Byggingin sem áður var straumskiptistöð hýsir núna Gestastofu Elliðaárstöðvar. Húsið var reist árið 1937 eftir teikningum Sigurðar Guðmundssonar arkitekts. Nú hýsir Gestastofan viðburði á vegum Elliðaárstöðvar og samstarfsaðila, sýningar um orku- og veitukerfi og tekið er á móti skólahópum í fræðslu. Á efri hæð Gestastofunnar má finna fundarrýmið Uppsprettu.