Komdu á útisvæði Elliðaárstöðvar og finndu gufuborinn Dofra sem lagstur er í helgan stein á svæðinu, lestu á skilltið fyrir framan til að læra um gufuborinn. Skelltu þér svo með hóp í leikinn Dofri segir.
Tilvalið fyrir 5-12 ára.
Leikurinn fylgir sömu reglum og hinn klassíski Símon segir, eitt barn eða starfsmaður er Símon hann segir hópnum að gera eitthvað en hópurinn á einungis að fylgja leiðbeiningunum ef sagt er „Símon segir…“.
í Dofri segir er það einn sem er Dofri, gufuborinn stóri sem gat borað á einum degi það sem gömlu höggborarnir boruðu á 30 dögum.
Leikurinn fer þá eins fram og Símon segir nema það er sagt „Dofri segir…“ hægt er að segja hvað sem er en ef sagt er „Dofri segir borhola!“ á að gera froskahopp og lyfta upp höndum eins og heitt vatn að spýtast úr borholu. Ef sagt er „Dofri segir gufubor!“ þá eru hendur settar upp í loft til að líkjast gufubor. Svo er hægt að láta hópinn ákveða hvaða hreyfingu á að gera fyrir orð eins og t.d. hitaveita, hvaða hreyfingu tengja þau við orðið?
Fræðsluefni
Hvaðan fáum við varmann sem hitar upp heimili okkar og hjálpar okkur að framleiða raforku og heitt vatn í jarðvarmavirkjunum? Kynntu þér ferðalag varmans!
Skoða nánar