Komdu á útisvæði Elliðaárstöðvar og farðu í leik um fráveituna. Leiddu hópinn í gegnum fráveitulagnirnar og út á tún í leikinn Hreinsistöð, hreinsistöð.
Tilvalið fyrir 6-12 ára, best er að hafa10-30 krakka í leiknum.
Í þessum leik eru krakkarnir annaðhvort hreinsistöð, kúkar eða blautþurrkur. Leikurinn gengur fyrir sig eins og krókódíll krókódíll. Sá sem er hann stendur á miðjum vellinum og er hreinsistöð. Krakkarnir vilja komast framhjá hreinsistöðinni og út í sjó. Þau raða sér hlið við hlið öðru megin á vellinum og þurfa að komast yfir á hina hliðina. Gott er að skilgreina völlinn vel svo ekki sé hægt að hlaupa of langt út til hliðanna.
Hreinsistöðin velur svo lit og þau sem eru í fötum í þeim lit eru kúkar og komast beint í gegn og út í sjó, yfir á hinn enda vallarins. Þau sem eru ekki í þeim lit eru blautþurrkur sem reyna að hlaupa í gegn en hreinsistöðin vill stoppa þær með því að klukka. Blautþurrkur mega nefnilega alls ekki fara ofan í klósettið og í gegnum fráveitukerfið.
Ef hreinsistöðin klukkar blautþurrkur þá breytast þær í hreinsistöð og leikurinn er endurtekin þar til öll hafa breytst í hreinsistöð, eða örfáir standa eftir.
Fræðsluefni
Hvert fer kúkurinn eftir að hann lendir í klósettinu? Hvernig verndar fráveitan okkur gegn sjúkdómum og hvernig virkar hringrás næringarefna? Kynntu þér ferðalag kúksins!
Skoða nánar