Veituleit – ratleikur
-
Aðgangur ókeypis
-
18. maí - 30. september 2026
-
13:00
-
Sjá á korti
Á opnunartíma Gestastofunnar, miðvikudag – sunnudags milli kl. 13 og 16, er hægt að skella sér í ratleik um svæðið. Komdu við í Gestastofunni, sæktu bækling og fylgdu kortinu.
Stöðvarnar má finna ýmist inni í húsakosti Elliðaárstöðvar eða í gluggum. Svaraðu spurningunum og leystu stutt verkefni milli stöðva með hópnum þínum. Merktu svo bæklinginn og skilaðu í póstkassann í Gestastofunni. Einn heppinn verður svo dreginn út í lok sumars og í boði eru vegleg verðlaun!