Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Orkubingó – leikur

BINGÓ!

Orkubingó virkar þannig að hver og einn fær útprentað spjald með spurningum, til þess að fá bingó þarf að fylla inn í alla reitina með nafni. Til þess að fá að skrifa nafn í reitinn þarf að finna einhvern í hópnum sem svarar já við spurningunni. Það má ekki skrifa sitt eigið nafn né sama nafnið tvisvar!

Hér fyrir neðan má finna útprentanleg bingóspjöld, bæði með tilbúnum orkuspurningum og með tómum reitum. Ef þið notið tómu spjöldin skal hver og einn nemandi fá tíma til að skrifa ólíka spurningu í hvern reit, annað hvort með ákveðnu þema eins og orku og vísindi eða leyfa hugmyndafluginu einfaldlega að fara á flug!

Svæði Elliðaárstöðvar er tilvalið til þess að fara í orkubingó en við mælum alltaf með því að fara út og njóta náttúrunnar meðan farið er í leikinn.

 

Bingóspjöld

Prentið tvö eða fjögur eintök á hverja síðu.

Bingóspjöld

Aðrar fréttir