Í Gestastofu Elliðaárstöðvar bjóðum við upp á skrifborðsaðstöðu til leigu í nýuppgerðu og björtu vinnurými í friðsælu grænu umhverfi.  Stutt er í alla útivist, árniður og endurnærandi orka allt um kring.

Á svæðinu er kaffihús, fundar- og ráðstefnuaðstaða, iðandi mannlíf, fjölbreyttir viðburðir og fræðslustarf.

Hér færðu aðstöðu sem veitir innblástur þar sem saga framsýni fyrri tíma og framtíðin mætast.

Umsókn um vinnuaðstöðu í Elliðaárstöð

Leiga á skrifborði kostar 38.000 kr. á mánuði án vsk. en innifalið í leigu er skrifborðsaðstaða með skjá, læst hirsla, aðgengi að sameiginlegri kaffistofu (kaffi, te, sódavatn), aðgangur að sturtu og afsláttur af fundarrýmum.

"*" indicates required fields