Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Árið 2025 í hnotskurn

31. desember 2025

Árið 2025 var heldur betur viðburðaríkt og skemmtilegt í Elliðaárstöð. Formleg opnun Elliðaárstöðvar þar sem loks var hægt að taka á móti gestum í nýuppgerðu rými Gestastofunnar. Tekið var á móti rúmlega 2500 nemendum í skólaheimsóknir og fjölbreyttir viðburðir haldnir í samstarfi við skapandi fólk og fyrirtæki. Rúmlega 85.000 gestir komu á svæðið á árinu en það hefur myndast fallegt samfélag í Elliðaárstöð sem við í teymi Elliðaárstöðvar erum svo stolt af að vera hluti af.

Feb

Febrúar

Safnanótt
Rafleiðsla og orkuhleðsla á Safnanótt í Elliðaárstöð. Rafleiðsla var einstakur viðburður haldinn í annað sinn í Elliðaárstöð. Sannkallað hljóðbað í einstöku rými Rafstöðvarinnar. Þá var hljóðleiðsögn frumflutt í Heimili veitna sem gaf gestum tækifæri á að draga í sig þekkingu um veiturnar og vísindin. En einnig prýddi verkið Uppljómun skrúðgarðinn en verkið er sýnt sem svar við ósk borgarbúa um aukna birtu í skammdeginu.

Fjölskyldusmiðja Hugmyndasmiða
Á verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð fór fram Fuglahúsa fjölskyldusmiðja undir handleiðslu hugmyndasmiðsins Ninnu Þórarinsdóttur.

Landslagsarkitektúrnemar unnu verkefni í Rafstöðinni
Nemendur í landslagsarkitektúr nýttu sér aðstöðuna í Elliðaárstöð og umhverfið í kring til verkefnavinnu. Einstakt að geta nýtt gamla rafstöð til hugmyndavinnu og sköpunar.

Mars

Mars

Hljómar árstíðanna – Vetur
Náttúran gefur frá sér áhrifamikla tóna en söngkonan Heiða Árnadóttir, píanóleikarinn Tinna Þorsteinsdóttir og víóluleikarinn Guðrún Hrund Harðardóttir sóttu innblástur þaðan og buðu upp á hlustunargöngu í Elliðaárdalnum. Lifandi tónlistarflutningur sem kallaðist á við árniðinn.

Growthscape – verk eftir Emil Gunnarsson
Opnun á útskriftarverki Emils Gunnarssonar úr meistaranámi í myndlist. Verkið hans prýddi Skrúðgarðinn en hann einblínir á samspil náttúrulegs og félagslegs umhverfis.

Fjölskyldusmiðja Hugmyndasmiða – Leikur að vindi
Á verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð fór fram fjölskyldusmiðjan, Leikur að vindi undir handleiðslu hugmyndasmiðsins Ninnu Þórarinsdóttur.

Rödd náttúrunnar
Tónleikar í Rafstöð af nýrri samtímatónlist fyrir kór og blendingasveit, tónlist eftir Rob Thorpe leikin af Polar Institute og náttúruverkefnakór

Apríl

Apríl

Barnamenningarhátíð í Elliðaárstöð
Smiðjan, Búum til fuglahús fór fram þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn og efla samvinnu fjölskyldunnar.

Þá fór fram Þeramínsmiðja með tónlistarkonunni Heklu Magnúsdóttur þar sem börn fengu að kynnast grafískri nótnaskrift og hljóðfærinu þeramín.

 

Maí

Maí

Opnunarhátíð Elliðaárstöðvar
Straumskiptistöðin var byggð árið 1937 til að taka á móti raforku frá Ljósafossstöð í Sogi. Nú er tekið á móti fólki en Gestastofan opnaði þann 16. maí. Opnunarhátíð fór fram í rúman mánuð, dagana 17. maí – 27. júní með fjölbreyttri og lifandi dagskrá. 3.500 gestir mættu yfir opnunarhelgina.

Opnunarpartý
Til að fagna opnun Gestastofunnar var haldið glæsilegt Opnunarpartý. Viðburðurinn var vel sóttur af starfsfólki Orkuveitunnar ásamt samstarfsaðilum Elliðaárstöðvar, sem nutu veislunnar í blíðskapar veðri.
Hugvit getur byggt betri heim
Samhliða formlegri opnun Gestastofunnar opnaði ný smástundasýning, Hugvit getur byggt betri heim í samstarfi við Carbfix. Á sýningunni mátti sjá valda muni frá Hönnunarsafni Íslands, Carbfix og Jarðhitasýningunni ásamt ljósmyndum úr einkasafni fjölskyldu Einars Þorsteins Ásgeirssonar, hönnuðs og arkitekts borholuhúss Carbfix.
Úthlutunarathöfn VOR
Úhlutunarathöfn VOR – vísinda- og frumkvöðlasjóðs Orkuveitunnar fór fram í nýrri Gestastofu. 33 styrkjum var úthlutað að heildarupphæð rúmlega 106 milljóna króna.

Fjölskyldusmiðja Hugmyndasmiða – Leikur að formum
Á verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð fór fram fjölskyldusmiðjan, Leikur að formum undir handleiðslu hugmyndasmiðsins Ninnu Þórarinsdóttur.

Hamingjuhlaup samtakana ´78
Hlaupið var frá Elliðaárstöð í sannkölluðu gleði hlaupi en tvær vegalengdir voru í boði, 7,8 km og 3 km. Einnig fór fram spretthlaup á hælum þar sem dragdrottningar sýndu listir sínar.

Júní

Júní

TENGJUM 2025 – Nýsköpunarfestival Veitna
Nýsköpunarfestival Veitna var haldið í fyrsta sinn. Frumkvöðlar, hönnuðir, tæknifólk og sérfræðingar fundu lausnir á flóknum vandamálum en segja má að Elliðaárstöð hafi orðið að sannkallaðri hugmyndastöð.

Stórtónleikar á Nýsköpunarfestivali
Nýsköpunarfestivali Veitna lauk með opnum stórtónleikum með Unu Torfa, Herra Hnetusmjör og DJ Dóru Júlíu. Fólk mætti, söng og dillaði sér með.

Flipp festival
Sirkuslistahópurinn Hringleikur setti upp Sirkustorg þar sem sirkusatriði, sýningar og viðburðir poppuðu upp yfir daginn.

Auðlindahringir 2025 – Vatnsveituhringur
Auðlindahringir voru á sínum stað þetta árið. Sá fyrsti var vatnsveituhringur en hjólaðir voru 23 km. Veðrið var viðeigandi þar sem hjólaferðin hófst á rigningu.

Jónsmessunæturganga
Gengið var frá Árbæjarsafni, niður Elliðaárdalinn með viðkomu í Sveinbjarnarlundi, þar sem sagðar voru sögur um þjóðtrú og öflugar jurtir á svæðinu. Gangan endaði í Rafstöðinni þar sem gestir fengu sér heitt súkkulaði og jurtate í kvöldkyrrðinni.

Meistarabúðir Hugmyndasmiða
Ninna hugmyndasmiður var með þriggja daga sumarnámskeið fyrir 10-11 ára krakka í Elliðaárstöð. Vísindamiðlarar Elliðaárstöðvar fóru í fræðandi orkuleiki með krökkunum eins og pípu áskorunina vinsælu. Krakkarnir unnu að því að smíða og hanna leiki eða annað skemmtilegt sem þeim datt í hug en allur efniviður var endurnýtt efni.

Krakkaþraut Hjólreiðafélags Reykjavíkur
Hátt í hundrað manns mættu í Elliðaárstöð í krakkaþraut Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Glaðningar, grill og góð stemning í glampandi sól og blíðviðri.
Júlí

Júlí

Landslagsgreining og hönnun
Smástundarsýning var sett upp í Gestastofunni með verkum nemenda í landslagsarkitektúr. Verkefnin unnu þau í Elliðaárstöð og tóku mið af því að skoða tækifærin sem fólgin eru í svæðinu með tilliti til náttúrunnar.

Krakkaveldið í Elliðaárstöð
Krakkar úr Krakkaveldinu breyttu Rafstöðinni í sköpunarrými þar sem þau hönnuðu og smíðuðu stórkostlega brúðu úr endurrunnum efniviði og marseruðu síðan með hana um svæðið.

Ágúst

Ágúst

DJ & dans í dalnum
Hitt húsið og Elliðárstöð buðu til plötusnúða-sumarveislu í dalnum. V-stone, DJ Gimmi og Iceman þeyttu skífum fyrir utan Rafstöðina ásamt því að boðið var upp á popp, candýfloss, drykki og leiki í garðinum.

Auðlindahringir 2025 – Hitaveituhringur
Sextíu manns mættu í Hitaveituhring þar sem hjóluð var 35 km leið um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Sérfræðingar Orkuveitunnar miðluðu áhugaverðum fróðleik og sögum á leiðinni.
Fundarými til útleigu
Byrjað var að leigja út fundarými í einstöku umhverfi en einnig er hægt er að bóka hópefli og leiðsögn sem gefur innspýtingu inn í vinnustofuna eða fundinn.
Sept

September

Verkstæði Hugmyndasmiða – Skógarverur lifna við
Á verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð fór fram fjölskyldusmiðjan, Leikur að formum undir handleiðslu hugmyndasmiðsins Ninnu Þórarinsdóttur.

Auðlindahringir – Rafveithringur
Tæplega 70 manns mættu í Rafveituhring þar sem hjólaðir voru 25 km.
Auðlindasérfræðingar Veitna fræddu þátttakendur á leiðinni meðal annars um dreifikerfi rafveitunnar.

Prosecco hlaup
Fólk mætti prúðbúið í sumarkjólum og hljóp ýmist eða labbaði eftir að hafa skálað í freyðivíni.

Orku- og vísindadagur
Í ár var fjórða árið í röð sem Orku- og vísindadagurinn var haldinn í Elliðaárstöð. 650 háskólanemum var boðið en tilgangurinn er að fræða um alla þá fjölbreyttu starfsemi og störf innan Orkuveitunnar og dótturfélaga.

Afmælishátíð íþróttaviku Evrópu
10 ára afmælishátíð Íþróttaviku Evrópu var haldin í Elliðaárstöð þar sem farin var 2 km afmælishlaup/ganga. Í brautinni voru skemmtilegir karakterar, tónlist og hreyfiáskoranir Hringleiks. Eftir hlaup mætti Leikhópurinn Lotta og skemmti þátttakendum.

Vísindavaka Rannís
Elliðaárstöð tók þátt í Vísindavöku Rannís í Laugardalshöllinni. Þúsundir kynntu sér fjölbreytt vísindi en á bás Elliðaárstöðvar var sérstök áhersla lögð á hringrás vatns. Margrét Hugadóttir, leiðtogi vísindamiðlunnar, las söguna um ferðalag Diddu dropa fyrir áhugasama krakka.

Okt

Október

Hjartastrengir & vatnsæðar
Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar opnaði í Gestastofunni þar sem líkami og borg mætast og ósýnilegt verður sýnilegt. Sýningunni er ætlað að draga fram hinar mikilvægu lífæðar samfélagsins, veitukerfin, á skiljanlegan og skemmtilegan hátt. Sýningin er byggð á nýju námsefni eftir Margréti Hugadóttur.

Nýsköpun & spjall – TENGJA
Meistaranemarnir Tumi Valdimarsson og Max Greiner kynntu verkefnið sitt TENGJA en þetta var fyrsti viðburðurinn í viðburðaröðinni Nýsköpun & spjall. Tilgangurinn með viðburðaröðinni er að búa til vettvang fyrir frumkvöðla og skapandi fólk til að segja frá verkefnum sínum, skapa samtal og veita innblástur.

Nóv

Nóvember

RAFLOST
Opnun raflistahátíðarinnar RAFLOST var haldin í Elliðaárstöð þetta árið. Laugardagana fram að opnuninni voru haldnar raftónlistasmiðjur undir leiðsögn hæfileikaríks listafólks. Afrakstur smiðjanna var meðal þess sem hægt var að skoða á opnun hátíðarinnar.

Enginn er Eyland
Sýningin „Enginn er eyland“ var sett upp í Rafstöðinni. Sýningin var afrakstur hópverkefnis þar sem nemendur á 3. ári í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands kanna hvernig Ísland gæti starfað án tengingar við umheiminn, með því að nýta auðlindir sem eru nú þegar til staðar.

Nýsköpun & spjall – Sögur sem kveikja neista
Nýsköpun & spjall fór fram í annað skipti þar sem Margrét Hugadóttir, leiðtogi vísindamiðlunar, fjallaði um kraft frásagnarinnar í vísindamiðlun. Erindið bar heitið Sögur sem kveikja neista.

Des

Desember

Jól í dalnum
Opið var alla laugardaga fram að jólum í desember þar sem boðið var upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Piparkökuskreytingar, leit af jólasveinum í Rafstöðinni, fjölskyldusmiðja með Ninnu hugmyndasmið, jólasveinar kíktu í heimsókn og Borgarkórinn og Hljómfélagið sungu inn jólin. Þá var Hjálparsveit skáta í Reykjavík með jólatrjáasölu í turninum sem vakti mikla ánægju fólks á svæðinu.

Aðrar fréttir