Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Elliðaárstöð er hugmyndastöð

27. febrúar 2026
Ninna Hugmyndasmiður

Síðan árið 2023 hefur Elliðaárstöð verið í samstarfi við HugmyndasmiðiSamstarfið skapar vettvang fyrir börn til að þjálfa færni sína í að leysa flókin vandamál framtíðarinnar, með áherslu á umhverfisvitund og nýsköpun. Krakkar eru hugmyndasmiðir og framtíðin er þeirra – og með samstarfinu er verið að gefa þeim þessi mikilvægu tól. 

Árið 2023 voru teknir upp þættirnir Frábær hugmynd í Elliðaárstöð. Í þessum þáttum segja þau Birta og Jean frá því hvernig þú getur orðið hugmyndasmiður. Hugmyndasmiður er sá sem fær hugmynd og hefur hugrekki og kraft til að láta hana verða að veruleika. Þau spjalla við íslenska hugmyndasmiði um uppfinningarnar þeirra og segja þér allt um það hvers vegna hugmyndasmiðir eru mikilvægir fyrir bæði nútíð og framtíð. Þættirnir voru birtir á KrakkaRúv og enn er hægt að horfa á þá hér. Bókin Frábær hugmynd kom út á sama tíma en bókin fjallar um hvers vegna hugmyndasmiðir eru mikilvægir fyrir framtíðina ásam því að kenna manni hvernig maður hugsar skapandi, fær hugmyndir og lætur hugmyndirnar verða að veruleika.

Hugmyndasmiðir hafa svo haldið fjölmargar fjölskyldusmiðjur á Verkstæði hugmyndasmiða í Elliðaárstöð. Ninna hugmyndasmiður leiðir þessar smiðjur en þær hafa vakið mikla lukku meðal barna og foreldra. Laggðar eru fyrir mismunandi hönnunaráskoranir. Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn og efla samvinnu fjölskyldunnar. Unnið er með endurnýttan efnivið sem hefur verið bjargað til að skapa eitthvað alveg nýtt og spennandi í gegnum smíðar, leiki, föndur, tilraunir og prófanir.

Meistarabúðir hafa einnig verið haldnar í tvö sumur í elliðaárstöð og verða haldnar hér aftur sumarið 2026. Meistarabúðir er skapandi sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-11 ára sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum.

Með samstarfi Elliðaárstöðvar og Hugmyndasmiða er verið að virkja sköpunarkraftinn og gefa börnum rými til að fá hugmyndir á eigin forsendum.

Fjölskyldusmiðjur

Ninna hugmyndasmiður tekur á móti skapandi krökkum á aldrinum 6-12 ára og foreldrum þeirra og leggur fyrir mismunandi hönnunaráskoranir á Verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð. Kynntu þér dagskránna fyrir vorið.

Skoða dagskrá

Meistarabúðir

Skapandi sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-11 ára sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum. Námskeiðið fer fram bæði úti og inni í Elliðaárstöð og munu þátttakendur smíða og búa til, fara í leiki og lenda í ævintýrum. Lestu um námskeiðið sem haldið var árið 2024 og fylgstu með vef- og samfélagsmiðlum okkar og Hugmyndasmiða, þar verður námskeið sumarsins auglýst.

Meistarabúðir 2024

Aðrar fréttir