Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Til baka

Elliðaárstöð varð hugmyndastöð

Mikil festival stemming ríkti á svæðinu.

Frumkvöðlar, hönnuðir, tæknifólk og sérfræðingar úr atvinnulífinu voru meðal þeirra sem tóku þátt í Nýsköpunarfestivali Veitna en um 100 manns voru samankomin til að leysa fimm áskoranir sem Veitur standa frammi fyrir.

Festivalinu var ætlað að vera skemmtilegasta vinnuvika ársins og byggðist dagskráin á svokölluðum hönnunarsprettum, þar sem teymin fengu þrjá daga til að greina áskoranir, skapa lausnir og prófa frumgerðir

Gestastofu Elliðaárstöðvar reyndist einstaklega vel en henni var skipt upp í fjögur svæði þar sem hver sprettur fór fram í sitthvoru rýminu. Þá var fundaraðstaðan í Heimili veitna einnig notuð til vinnu.

Þátttakendur leituðu lausna við fjölbreyttum viðfangsefnum eins og hvernig hraða mætti framkvæmdum í veitukerfum, endurnýta fitu úr fráveitukerfinu, hvetja til meðvitaðrar orkunotkunar meðal almennings, tryggja samræmi milli veituuppbyggingar og þéttingar borgarinnar, auk þess sem þeir endurhugsuðu fráveitukerfi framtíðarinnar með sjálfbærni í forgrunni. Árangurinn lét ekki á sér standa og fjölmargar ferskar hugmyndir litu dagsins ljós.

Unnið verður áfram með öll þessara verkefna að einhverju leyti. Jafnt innlendir sem og erlendir sérfræðingar héldu fyrirlestra sem blés móð í þátttakendur. Dr. Angela MacOscar, nýsköpunarstjóri hjá Northumbrian Water frá Englandi, Max McShane, yfirmaður stafrænnar umbreytingar hjá Octopus Energy í London, og framtíðarfræðingurinn Bergur Ebbi Benediktsson. Hin bráðskemmtilega Sandra Barilli stýrði viðburðinum af einstakri snilld.

 

Stórtónleikar með Herra Hnetusmjör, Unu Torfa og DJ Dóru Júlíu

Festivalinu lauk með glæsilegri lokahátíð og tónleikum við Elliðaárstöð. Sprettteymin kynntu lausnir sínar áður en vinsælt tónlistarfólk tók við. Herra Hnetusmjör, Una Torfa og DJ Dóra Júlía héldu uppi stuðinu og myndaðist einstök stemming á svæðinu.

Aðrar fréttir